fimmtudagur, 29. júlí 2010

Til minna 2 aðdáenda

Heiðarleg tilraun enn eina ferðina til að hrita hér niður elskurnar mínar Stella og Hulda, mínir einlægu og tryggu lesarar :)

Allavega þá kom andinn yfir mig núna og ég ákvað að fylgja honum án þess þó að taka nokkra ábyrgð af því hvað hann varir lengi.

...talandi um varir þá er ég að spá í að smyrja á mínar þurru besta salva ever, sem gengur sem hið fínasta og endigargóða gloss og heitir Lansinoh for cracked skin, líka ágætt fyrir breastfeeding mothers. En það er samt ekkert spes að hafa þetta á vörunum með slegið hárið í vindi því þá flagsast hárið og festist í glossinu..og hver vill hafa loðnar varir? Því er best í vindi að hafa hárið í tagli :)

Úti er veður vott en erum við fam að bíða eftir að sólin fari að skína aftur svo við komumst í útilegu. Hér er mjög gaman að vera í útilegu því á morgnanna þegar maður vaknar er gufubað í tjaldinu. OOg hver vill ekki vera rennandi sveittur og klesstur upp að rúmfélaga sínum + slatta af heitfengnum börnum þegar hann vaknar :)

Í danskri útilegu þarf ekki að taka lopapeysu og gönguskóna með heldur strandgírið og flipp floppana. Það er rándýrt að tjalda og borgar maður hér á mann frá 0 - 100 ára eins og fínasta hótelherbergi, en þetta er alveg þess virði, mjög flott aðstaða og mikið um að vera fyrir krakkana svo getur þú líka valið tjaldstæði eftir stjörnum eins og hótelin.

Takk og bless

Svo þegar Gyðjan er búin að vökva garðinn minn má nú láta ljós sitt skína á ný og verma okkur hér með sínum 30 gráðum igen.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ohhhh þú ert svo yndislega skemmtilegur penni ástin mín
viltu skrifa meira
plís
elska þig
þín Hulda Lind

stella sagði...

Já skrifa meeeira!!!!

ást
stella