Jæja þá ætla ég að gera hér enn eina tilraunina til bloggs og skrifa hér, mér sjálfri og óskandi ykkur til skemmtunnar. Þetta er líka tilraun til þess að sparka í rassinn á mér varðandi kreativitet, sem ég man ekki íslenska orðið yfir akkurat núna. Það er eitt af því skemmtilegasta sem ég geri en á það til að festast í höfðinu á mér og komast ekki lengra.
En nú er bara að taka ákvörðun og hætta því, ekki satt?
Ég ætla líka að henda inn myndum af því sem ég er að sýsla við.
Á gamlárskvöld voru hjá okkur góðir vinir og kenndi Hulda Lind vinkona mín mér að hekla vettlinga, hún sagði reyndar að ég hafi alveg kunnað að hekla, hún hafi bara ýtt á mig.. en allavega þá gerði ég mér mína fyrstu hekluðu vettlinga úr þessum fagra græna léttlopa og guð hvað ég var stollt og spranga hér með þá á mér við hvert tækifæri.
Þeir eru not perfect, annar vettlingurinn mér til mikils ama, í byrjun, var aaaaðeins minni en hinn, men pyt, það gerir þá bara meiri sjarmó fyrir vikið. Var svo að enda við að hekla á Vöku og er komin með einn, hún valdi sér bleikan lit á lopa, lái henni ekki, er sjálf á bleiku tímabili núna (eins og sést á fagra layout'inu á blogginu).
Hulda þessi elska sendi mér nefnilega heilan haug af lopa því hún keypti upp lagerinn hjá Ístex því lopinn er svo helvíti ódýr og miða við gengi hvaða valuta sem er kostar hann skíð og íngentíng.


Og já...Samkvæmt Google translate er kreativ sköpun á íslensku