fimmtudagur, 29. júlí 2010

Til minna 2 aðdáenda

Heiðarleg tilraun enn eina ferðina til að hrita hér niður elskurnar mínar Stella og Hulda, mínir einlægu og tryggu lesarar :)

Allavega þá kom andinn yfir mig núna og ég ákvað að fylgja honum án þess þó að taka nokkra ábyrgð af því hvað hann varir lengi.

...talandi um varir þá er ég að spá í að smyrja á mínar þurru besta salva ever, sem gengur sem hið fínasta og endigargóða gloss og heitir Lansinoh for cracked skin, líka ágætt fyrir breastfeeding mothers. En það er samt ekkert spes að hafa þetta á vörunum með slegið hárið í vindi því þá flagsast hárið og festist í glossinu..og hver vill hafa loðnar varir? Því er best í vindi að hafa hárið í tagli :)

Úti er veður vott en erum við fam að bíða eftir að sólin fari að skína aftur svo við komumst í útilegu. Hér er mjög gaman að vera í útilegu því á morgnanna þegar maður vaknar er gufubað í tjaldinu. OOg hver vill ekki vera rennandi sveittur og klesstur upp að rúmfélaga sínum + slatta af heitfengnum börnum þegar hann vaknar :)

Í danskri útilegu þarf ekki að taka lopapeysu og gönguskóna með heldur strandgírið og flipp floppana. Það er rándýrt að tjalda og borgar maður hér á mann frá 0 - 100 ára eins og fínasta hótelherbergi, en þetta er alveg þess virði, mjög flott aðstaða og mikið um að vera fyrir krakkana svo getur þú líka valið tjaldstæði eftir stjörnum eins og hótelin.

Takk og bless

Svo þegar Gyðjan er búin að vökva garðinn minn má nú láta ljós sitt skína á ný og verma okkur hér með sínum 30 gráðum igen.

fimmtudagur, 14. janúar 2010

Kjamsikaka og perlur

Saumó var afar huggulegur og bakaði ég þessa líka svakalega góðu eplaköku með súkkulaðirúslum, sem ég reyndar varð mér ekki úti um svo ég notaði bara súkkulaði og rúsínur í staðinn og það gekk fínt. En ég ætla hér að deila með ykkur þessari gómsætu köku sem gerir svaka lukku:

5 afhýdd epli, skorin í bita.
Kanilsykur
Súkkulaðirúsínur
salthnetur

Deig:
125 hveiti
125 smjör
125 sykur

Eplin sett í eldfast mót, kanelsykri stráð yfir og svo súkkulaðirúslunum.
Degið er hnoðað saman og mulið yfir og síðan söxuðum salthnetunum stráð yfir herlegheitin. Bakað í 180° í 30-40 mín. Kjams gott með rjóma eða ís.. Slurp.



Svo var það föndur dagsins þessi fína hálsfesti sem ég er bara mjög ánægð með. Ég er afar sátt ef ég næ að gera e-ð skapandi á hverjum degi því það er svo margt sem mig langar að gera. Fyrir utan það þá verð ég alveg ómöguleg ef mér finnst ég ekki hafa afrekað eitthvað hvað það varðar.





Góða nótt elskurnar

miðvikudagur, 13. janúar 2010

Í fílu

Ég er í fílu við bleika vettlinga, seinni vettlingurinn varð minni..ekki smá..heldur fullt minni þrátt fyrir talningu, svo nú liggja þeir afskiptalausir í sakleysi sínu. Það er náttúrulega spurning um upprekstur og hætta þessari fílu...góð hugmynd.

Ég er líka í fílu...nei ekki fílu heldur brjáluð út í hunda eigenda: ÉG ÞOLI EKKI HUNDAEIGENDA SEM TAKA EKKI UPP HELVÍTIS SKÍTINN EFTIR KVIKINDI SÍN, með þeim afleiðingum að börnin mín eða eins og í morgun.. ég.. keyrði vagninn ofan í einn slíkann íllla lyktandi og ógeðfelldann.

Annars er Saumó í kvöld, fámennur mjjög fámennur en góðmennur og ætla ég að nota tækifærið baka hin heil ósköp svo ég geti svo borðað afgangana á morgun og hinn og hinn og hinn, ég er nefnilega byrjuð að skokka og launa mér það að stöffa mig með góðgæti.

Þar sem eldri dóttirin fær ekki vettlingana sína alveg strax ætla ég að gleðja hana með einhverju krúttlegu á ullarsokkana hennar...






Ég keypti slatta af tölum á flóa, getur komið sér vel að eiga slatta af tölum.

mánudagur, 11. janúar 2010

Kartöflusúpa með brokkolí

Slatti af soðnum kartöflum og brokkolí sett í múlann ásamt vatni og grænmetiskrafti.. eftir múl þá sett í pott. Etv meira vatn, salt og pipar og vel af matarrjóma. Súpan á að vera þykk. Mér finst óþarfi að vera með brauð með því hún er svo seðjandi en auðvitað er það smekksatriði.

Vessgú og velbekomme



Svo er nauðsinlegt að fá sér eins og einn tebolla á eftir.

sunnudagur, 10. janúar 2010

BloGG 1

Jæja þá ætla ég að gera hér enn eina tilraunina til bloggs og skrifa hér, mér sjálfri og óskandi ykkur til skemmtunnar. Þetta er líka tilraun til þess að sparka í rassinn á mér varðandi kreativitet, sem ég man ekki íslenska orðið yfir akkurat núna. Það er eitt af því skemmtilegasta sem ég geri en á það til að festast í höfðinu á mér og komast ekki lengra.

En nú er bara að taka ákvörðun og hætta því, ekki satt?

Ég ætla líka að henda inn myndum af því sem ég er að sýsla við.

Á gamlárskvöld voru hjá okkur góðir vinir og kenndi Hulda Lind vinkona mín mér að hekla vettlinga, hún sagði reyndar að ég hafi alveg kunnað að hekla, hún hafi bara ýtt á mig.. en allavega þá gerði ég mér mína fyrstu hekluðu vettlinga úr þessum fagra græna léttlopa og guð hvað ég var stollt og spranga hér með þá á mér við hvert tækifæri.

Þeir eru not perfect, annar vettlingurinn mér til mikils ama, í byrjun, var aaaaðeins minni en hinn, men pyt, það gerir þá bara meiri sjarmó fyrir vikið. Var svo að enda við að hekla á Vöku og er komin með einn, hún valdi sér bleikan lit á lopa, lái henni ekki, er sjálf á bleiku tímabili núna (eins og sést á fagra layout'inu á blogginu).

Hulda þessi elska sendi mér nefnilega heilan haug af lopa því hún keypti upp lagerinn hjá Ístex því lopinn er svo helvíti ódýr og miða við gengi hvaða valuta sem er kostar hann skíð og íngentíng.




Og já...Samkvæmt Google translate er kreativ sköpun á íslensku