miðvikudagur, 13. janúar 2010

Í fílu

Ég er í fílu við bleika vettlinga, seinni vettlingurinn varð minni..ekki smá..heldur fullt minni þrátt fyrir talningu, svo nú liggja þeir afskiptalausir í sakleysi sínu. Það er náttúrulega spurning um upprekstur og hætta þessari fílu...góð hugmynd.

Ég er líka í fílu...nei ekki fílu heldur brjáluð út í hunda eigenda: ÉG ÞOLI EKKI HUNDAEIGENDA SEM TAKA EKKI UPP HELVÍTIS SKÍTINN EFTIR KVIKINDI SÍN, með þeim afleiðingum að börnin mín eða eins og í morgun.. ég.. keyrði vagninn ofan í einn slíkann íllla lyktandi og ógeðfelldann.

Annars er Saumó í kvöld, fámennur mjjög fámennur en góðmennur og ætla ég að nota tækifærið baka hin heil ósköp svo ég geti svo borðað afgangana á morgun og hinn og hinn og hinn, ég er nefnilega byrjuð að skokka og launa mér það að stöffa mig með góðgæti.

Þar sem eldri dóttirin fær ekki vettlingana sína alveg strax ætla ég að gleðja hana með einhverju krúttlegu á ullarsokkana hennar...






Ég keypti slatta af tölum á flóa, getur komið sér vel að eiga slatta af tölum.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ elskan..........þú ert yndisleg
númer hvað er nálin sem þú ert að hekla með ? ertu enn með trénálarnar ? ef svo er þá skaltu fjárfesta í nýrri......skrítið að vettlingurinn sé minni þrátt fyrir talningu....ég held að þetta sé nálinni að kenna.
ohhh væri til í saumó í kvöld...ég búin að finna geggjaðaða prjónabúð hérna ....þú yrði alveg brjál
knús honey
Hulda lind pylsa forever

jóna björg sagði...

já ég er enn með trénálarnar, ætla að kaupa mér nýja nál er bara löt að koma mér í strætó.. Finn líka að þær eru soldið stamar.
En svo var þrenginin efst líka of stutt hjá mér þarf að vanda mig betur.

Ohh já langar alveg verða brjál í prjónabúð með þér, reyndar í hvaða búð sem er núna, Sindri segir það gleðji mig fátt annað en að kaupa :)

knúús darling

Nafnlaus sagði...

það er fátt sem gleður konuna meira en að kaupa..........ég elska að kaupa , kaupa ,kaupa
það versta við þetta er að ég á aldrei neina peninga en það er annað mál....kanski er það ástæðan fyrir því að okkur finnst svona gaman að kaupa....þ.e vegna þess að við fáum svo sjaldan að njóta okkar og kaupa
knús í hús Hulda forever

Stella sagði...

Ég er einmitt aldrei duglegri í namminu en þegar en eftir ræktina. Sit lafmóð og rauð í framan að maula suðusúkkulaði..

Góða skemmtun í saumó!

XXX ástarkveðjur

Stella sagði...

Ég er einmitt aldrei duglegri í namminu en þegar en eftir ræktina. Sit lafmóð og rauð í framan að maula suðusúkkulaði..

Góða skemmtun í saumó!

XXX ástarkveðjur

jóna björg sagði...

já ég held það Hulda, en okkar verslunar tími mun koma þegar kallarnir okkar fara að þéna feitt :D..og við auðvitað líka, ætlum nú ekkrt að vera upp á þá komin nei.

Ef ég léti mér suðusúkkulaði nægja.. annars er þetta ekkert nema vaninn, ég er alveg sjúk í að fá mér súkkulaði þegar ég drekk te og hugga mér með skemmtilegu tímariti. bara toppurinn.

xxx ást

Lia sagði...

I love these pictures :)...the socks are soooo cute