En nú er bara að taka ákvörðun og hætta því, ekki satt?
Ég ætla líka að henda inn myndum af því sem ég er að sýsla við.
Á gamlárskvöld voru hjá okkur góðir vinir og kenndi Hulda Lind vinkona mín mér að hekla vettlinga, hún sagði reyndar að ég hafi alveg kunnað að hekla, hún hafi bara ýtt á mig.. en allavega þá gerði ég mér mína fyrstu hekluðu vettlinga úr þessum fagra græna léttlopa og guð hvað ég var stollt og spranga hér með þá á mér við hvert tækifæri.
Þeir eru not perfect, annar vettlingurinn mér til mikils ama, í byrjun, var aaaaðeins minni en hinn, men pyt, það gerir þá bara meiri sjarmó fyrir vikið. Var svo að enda við að hekla á Vöku og er komin með einn, hún valdi sér bleikan lit á lopa, lái henni ekki, er sjálf á bleiku tímabili núna (eins og sést á fagra layout'inu á blogginu).
Hulda þessi elska sendi mér nefnilega heilan haug af lopa því hún keypti upp lagerinn hjá Ístex því lopinn er svo helvíti ódýr og miða við gengi hvaða valuta sem er kostar hann skíð og íngentíng.
Og já...Samkvæmt Google translate er kreativ sköpun á íslensku
5 ummæli:
Nauj nauj flottir vettlingar!!! Verður að kenna mér þetta, nenni nefnilega alls ekki að prjóna vettlinga!
Til lukku með bloggið, hlakka til að fylgjast með:)
Ástarkveðjur frá þinni einlægri
Gaman að sjá þig darling, gerði heiðarlega til að hringja í gær, bött nó svar.
Ekki málið, þetta er svo auðvellt að það tekur eina kvöldstund, verst er þó að hinn helv vettlingurinn á Vöku varð líka minni en hinn þrátt fyrir talningu svo nú er ég í fílu í smá stund.
ást xxx
jesssss hvað þú ert myndó ....ohhh núna er ég að prjóna mér geggjað sjal.......þú verður alveg græn af öfund og villt ólm fá að vita hvernig ég geri.......keyptu þér svokallað kauni garn það er marglitt og svo skal ég kenna þér þegar þú kemur.....kauni er danskt garn svo það ætti ekki að vera mál.........og hvað við erum dúlegar í sumar verðum við á hekluðu bikini .....verðum að hekla það með aðeins minni nál svo að allt dótaríið sjáist ekki
knús í hús þín Hulda LInd
Haha já Hulda mér líst vel á það en eins gott að herlegheitin koma ekki í gegn, en við verðum náttúrulega með svo fínan kantskurð og allt vel stússað og fínklippt.
já líst líka vel á sjalið, I like!
Skrifa ummæli